Karfan þín er tóm

Upplýsingar um vöru

Vörunúmer: WEB_VKL_KOPAR

Kopar er eðalmálmur sem hefur verðið notað í aldaraðir til að klæða þök og veggi. Koparinn hefur ótrúlega endingu til eru yfir þúsund ára gömul koparþök.

Kopar er mjög auðveldur í vinnslu og hafa arkitektar og iðnaðarmenn hrifist mjög af eiginleikum hans í gegnum tíðina. Á yfirborði kopars myndast náttúruleg patína sem ver hann gegn tæringu og myndar fallegan náttúrulegan lit.

Hægt er að fá KME® koparinn forveðraðan og í mismuandi málmblöndum. TECU® Classic er hreinn kopar sem veðrast með tíð og tíma og verður á endanum grænn. TECU® Patina er forveðraður kopar þar sem yfirborðið er þegar grænt. TECU® Oxid er forveðraður þannig að hann hefur dökka brúnleita áferð. Einnig eru í boði TECU® Zinn , TECU® Brass og TECU® Bronze.

Áltak hefur undanfarin ár haldið námsskeið fyrir blikksmiði í læstum málmklæðningum og því er til í landinu mikil verkþekking varðandi klæðningar með kopar.

Áltak er hönnuðum innan handar við allar útfærslur, við eigum mikið magn teikninga og deililausna, auk þess sem við erum í sambandi við færustu hönnuði hjá KME®. Okkar markmið varðandi koparinn er eins og á öðrum sviðum er að veita heildarlausnir sem virka miðað við íslenskar aðstæður.

Veggklæðningar
KME® kopar hentar ekki síður í loftræstar utanhússklæðningar, ótal útfærslur eru í boði ásamt undirkerfi og festingum. Áltak býður allt sem til þarf varðandi utanhússklæðningar úr kopar, allar festingar, undirkerfi, undirlag, teikningar, ráðgjöf og verklýsingar.

Eiginleikar
Nafn eiginleika Gildi eiginleika
Tegund Veggklæðning
Gerð Koparklæðning
Efnisgerð Kopar