Þessi lokun(RGS EI120) hentar mjög víða þar sem krafist er sérlega mikilla eldvarna. Hið háa eldvarnargildi sem lokunin er gefin upp fyrir, 120 mínútur (samkvæmt EI(1) eldvarnarkröfum) gerir þessa lokun sérstaklega hentuga fyrir algengustu aðstæður þar sem eldvarna er krafist. Hægt er að tengja lokunina við öryggiskerfi. Hentar því mjög vel þar sem hættuleg efni eru geymd.
Þessa eldvarnarhurð er hægt að nýta við ýmsar aðstæður. Hægt er að nota hana hvort heldur sem rúlluhurð með lóðrétta eða lárétta opnun. Hátt eldvarnargildi 60 mínútur (samkvæmt EI kröfum) og 180 mínútur (í samræmi við EW kröfu), byggt á tvíhliðaprófun í samræmi við NEN-EN 1634-1, gerir þessa hurð einig sérstaklega hentuga fyrir algengustu eldvarnaraðstæður. Eldvarnarhurðin getur einnig verið með vottaða vökvalokun eða sprengjuheld. Hægt er að fá hurðina ATEX vottaða (varsla á efnum sem mögulega geta valdið sprengningu). Hurðin er því frábær lausn fyrir svæði þar sem hættuleg efni eru geymd
Eldvarnarrúllulokun er lausnir fyrir fjölbreytilegar aðstæður. Þar sem þetta er rúllulokun er hún einnig oft notuð sem lokun sem opnuð er reglulega jafnframt því að vera eldvarnarlokun.