RGT EW 30-60-90-120 eldvarnartjaldið frá Metacon er framleitt úr eld-tefjandi dúk, gráum að lit.
Eldvarnargildi: 30, 60, 90 og 120 mínútur.
Tjaldið er með styrkingum sem varna því að tjaldið fari úr brautinni við þrýsting.
Hliðarbrautir eru úr galvanhúðuðu stáli.
Drifmótorinn er 230V rörmótor sem með viðeigandi búnaði losast sjálfkrafa við eldsvoða.
Hægt er að fá varaafls-rafhlöðu.