Með því að beina reyk og hita frá svæði þar sem eldur brennur með reyklosunarkerfi er tryggt að á svæðinu verði reykur í lágmarki. Þannig tryggir það greiðari leið við rýmingu, auðveldar vinnu við slökkvistörf, lækkar hitastig reyks (dregur úr varmaáhrifum á þak og aðra húshluta) og kemur því í veg fyrir að eldur breiðist út og lágmarkar það tjón.
Með því að nota viðurkennd reyklosunarkerfi er mögulegt að stækka leyfileg eldhólf í byggingu og lækka þannig eldvarnarflokki byggingar að undangenginni brunahönnunn.