Áltak framleiðir (valsar) báru úr lituðu áli og ólituðu Aluzinki í mörgum formum á íslandi.
- 18/76 Klassísk bára
- 10/32 Fín bára
- 28/128 Stór bára
- 55/177 Stærsta báran
- 33/175 Öldubára
Álið er 0,7mm á þykkt og flasningaefni fæst í þykktum 0.7 - 1.0 - 2.0mm
Álið er framleitt í öllum þeim lengdum sem henta þér.
Afgreiðslutími er 2-4 dagar.
Einnig bjóðum við upp á enn fleiri form í báru- eða trapizu álplötur bæði á þök og veggi, en afgreiðslutími á þeim er um 4-6 vikur.