Top 50 Doka-bitamót bjóða upp á endalausa möguleika og nánast allar lausnir í steypu. Sjónsteypa er oft vandamál varðandi staðsetningu á kónagötum og þá eru Doka bitamót lausnin. Krossviðinn þarf að kaupa en annað er hægt að taka á leigu hjá okkur. Top 50 Doka- kerfið er notað mikið við stærri framkvæmdir og byggingar. Útlit, stærð og kónagata munstur er hægt að aðlaga að nánast hverju sem er.
Eigum mikið magn bogamóta sem eru fljótleg og auðveld í notkun. Með bogamótum er hægt að móta radíus frá 3,5 og uppúr. Hægt er að minnka radíus allt niður í 2.5 m og jafnvel neðar en þá þarf að skipta um krossvið. Mótin eru 3.6 m á hæð og hægt að hækka upp í 4.8 m. Strekkjarar eru skrúfaðir í réttan radíus, fljótlegt og auðvelt. Að ætla að slá upp bogavegg á staðnum, kaupa timbur, saga út radius, kaupa krossvið og þurfa síðan að rífa allt aftur og henda stórum hluta á haugana borgar sig ekki miðað við að taka bogamótin á leigu hjá okkur.
Turnakerfið frá Doka heitir Staxo, það er bæði fljótlegt og þægilegt í notkun. Burður er 6 tonn á löpp eða 24 tonn á turn , hæðin er ekki vandamál og allar útfærslur í boði. Þegar lofthæðin eykst þá er þetta lausnin!
Dokaflex 1-2-4 er einfalt og fljótlegt kerfi sem margir þekkja. Eigum til á lager allt sem þarf í undirslátt . Þar sem okkar stoðir bera 2 tonn í öllum lengdum þá þarf færri stoðir og þú sparar flutning.
Doka er eini mótaframleiðandinn sem notar X-LIFE mótakrossvið. Þau hafa margfalda endingu á við venjulegan krossvið. Tvær gerðir fást af Xlife kerfismótum, annars vegar álmót og hins vegar stálmót. Álmót (Alu-Framax Xlife) eru létt og meðfæranleg. Stálmót (Framax Xlife) eru auðveld í notkun hvort sem þau eru látin standa lóðrétt eða lárétt.