Upmann er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í hönnun og þróun gaumlúga og eru leiðandi á markaði. Þeir bjóða upp á breiðar vörulínur sem henta öllum aðstæðum.
Ef þú þarft að komast fljótt og örugglega í falda byggingahluta, þá eru gaumlúgur rétta lausnin.
Gaumlúgurnar fást með margskonar lásafestingum og í mörgum stærðum.
Einnig er hægt að fá gaumlúgur með brunaþol frá EI30 upp í EI120.
Stærðir eru mismunandi milli týpa en nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu framleiðanda eða hjá sölumanni Áltaks.