Með veggjapanelum frá Tripplex lyftir þú hönnun rýmis í nýjar hæðir og fær ímyndunarafl þitt ótakmarkað frelsi til að búa til einstök rými. Panellinn er til í þremur litum, Eik, hnota og svartur. Óteljandi samsetningarmöguleikar eru í boði þar sem hægt er að laga breidd, dýpt, fjarlægð að þinni hugmynd.
Panellinn fegrar ekki eingöngu rými heldur hefur hann einnig áhrif á hljóðvistina. Með viðarpanelum frá Tripplex ertu að lágmarka bergmál sem myndast í flestum rýmum en slíkt getur haft veruleg áhrif á viðveru fólks inni í rýminu án þess að það áttar sig á því.