Karfan þín er tóm

Reikningsviðskipti

Reikningsviðskipti.

Fagkaup býður viðskiptavinum upp á reikningsviðskipti þar sem öll vörukaup eru færð í reikning og er hvert úttektartímabil almanaksmánuðurinn. Uppsöfnuð viðskiptaskuld er með gjalddaga 1. dag næsta mánaðar og eindagi er 10. þess sama mánaðar.

Greiðsluskilmálar

Öll vörukaup eru færð í reikning og er hvert úttektartímabil almanaksmánuðurinn.
Uppsöfnuð viðskiptaskuld er með gjalddaga 1. dag næsta mánaðar og eindagi er 15. þess sama mánaðar. Þegar eindaga greiðsluseðils ber upp á helgi eða frídag er mikilvægt að greiða reikning síðasta virka dag fyrir eindaga fyrir klukkan 21.
Sjá nánar viðskiptaskilmála hér.

Greiðsluseðlar, greiðslugjald

Reikningar eru sendir út í upphafi hvers mánaðar og krafa stofnast í heimabanka, ekki er sendur greiðsluseðill.
Þeir viðskiptavinir sem óska eftir að fá senda greiðsluseðla í pósti samþykkja að greiða sérstakt greiðslugjald.

Vaxtakjör og innheimtukostnaður

Sé reikningur ekki greiddur á eindaga reiknast dráttarvextir frá gjalddaga.
Falli skuld í eindaga eru send út innheimtuviðvörun og innheimtubréf og er kostnaður vegna þessarar innheimtu skuldfærður á viðskiptareikning. Vísað er til laga nr. 95/2008 og reglugerðar varðandi innheimtugjöld.
Sé innheimtuviðvörun og innheimtubréfi ekki sinnt þá er krafan send í lögfræðiinnheimtu.

Rafrænir reikningar og tölvupóstur

Viðskiptavinir geta óskað eftir því að fá senda rafræna reikninga og/eða reikninga í tölvupósti, daglega.

Reikningar aðgengilegir á vef

Hægt er að fá aðgang að reikningayfirliti hér á vefnum, þar er hægt að skoða reikninga og prenta út hreyfingaryfirlit.
Ef að þú ert ekki með aðgang að vefnum getur þú sótt um aðgang með því að smella hér og fylla út viðeigandi form.

Umsókn um reikningsviðskipti

Þeir sem eru í forsvari fyrirtækja, svo sem forstjórar, fjármalastjórar eða aðrir prókúruhafar fyrirtækis, geta sótt um reikningsviðskipti hjá Fagkaup.

Skilyrði fyrir því að reikningsumsókn sé samþykkt er að viðkomandi sé ekki á vanskilaskrá hjá Creditinfo Ísland og að CIP áhættumat fyrirtækis sé ekki hærra en 7.
Ábyrgðarmaður þarf að vera fasteignareigandi og má ekki vera á vanskilaskrá hjá Creditinfo Ísland.

Til að sækja um reikningsviðskipti þarf að smella á hlekkinn hér fyrir neðan og fylla út formið sem að opnast:
Umsókn um reikningsviðskipti

Ef farið er fram á reikningsheimild yfir 250.000 kr. er nauðsynlegt að skrifa undir sjálfskuldarábyrgð, hægt er að gera það með því að smella á hlekkinn hér að neðan:
Skrifa undir sjálfskuldarábyrgð

Nánari upplýsingar

Vinsamlegast hafið samband við reikningar@fagkaup.is varðandi nánari upplýsingar.