Doka er eini mótaframleiðandinn sem notar X-LIFE mótakrossvið. Þau hafa margfalda endingu á við venjulegan krossvið. Tvær gerðir fást af Xlife kerfismótum, annars vegar álmót og hins vegar stálmót. Álmót (Alu-Framax Xlife) eru létt og meðfæranleg. Stálmót (Framax Xlife) eru auðveld í notkun hvort sem þau eru látin standa lóðrétt eða lárétt.
Dokaflex 1-2-4 er einfalt og fljótlegt kerfi sem margir þekkja. Eigum til á lager allt sem þarf í undirslátt . Þar sem okkar stoðir bera 2 tonn í öllum lengdum þá þarf færri stoðir og þú sparar flutning.
Loading hurðir eru handhægar í notkun og sterkar. Þær eru markaðsleiðandi lausn og eru vinsælar fyrir m.a iðnað, vöruhús, landbúnað, bílageymslur og bílskúra.
Frábærar einfaldar lausnir fyrir hljóðvist fyrir heimili, skrifstofur, sjúkrahús og nánast hvað sem er. Ecophon framleiðir allar útfærslur af kerfisloftum og eru bogaloftin frá þeim sérstaklega skemmtileg.
Bergmál og hávaði eru ein algengasta orsök þreytu og einbeitingaleysis. Við bjóðum uppá frábæra lausn á hlóðvistar vandamálum. Ecophon SOLO plöturnar hafa reynst einstaklega vel þar sem þær hafa verið notaðar s.s. heimilum kennslustofum, skrifstofum og opnum rýmum. Síðastliðin ár er búið að byggja gríðarlega mikið af húsnæðum í svo kölluðum mínimalista (opin rými, fá húsgögn, flísar á gólfum og hörð efni í lofti og veggjum). Þessi byggingastíll er ekki hljóðvistar vænn. Harðir hlutir gleypa ekki í sig hljóð. Þ.a.l. verður oft mjög ónotanlegt í þessum rýmum. Ecophon SOLO plöturnar draga úr bergmáli og glymjanda og þar með hjálpa til að gera rýmið notalegt og þægilegt án þess að spilla útlitinu.