Fagkaup er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2021 en að þessu sinni komast ríflega 1.000 fyrirtæki á þennan lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar að uppfylltum skilyrðum um tekjur, eiginfjárhlutfall og rekstrarafkomu.
Fyrirtækin uppfylla strangar kröfur:
- Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.
- Tekjur þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna.
- Eignir þurfa að hafa verið umfram 80 milljónir króna.
- Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.
- Aðrir þættir metnir af Viðskiptablaðinu og Keldunni t.d. skil á ársreikningi og rekstrarform.
Við erum stolt af þessari viðurkenningu og hún hvetur okkur áfram í að gera enn betur.
Undir merkjum Fagkaupa eru Áltak, Johan Rönning, KH Vinnuföt, S. Guðjónsson, Sindri, Varma & vélaverk og Vatn & veitur.